18.11.1985
Neðri deild: 16. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (534)

89. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Eins og fram kom í ræðu 1. flm. virðist hann þeirrar skoðunar að þetta frv. sé eins og nefnd sú er hæstv. félmrh. skipaði skilaði því. Það er misskilningur; nefndin klofnaði í afstöðu sinni til þessa máls og ekki er hægt að líta á þetta frv. sem skilgetið afkvæmi þeirrar nefndar sem vitnað er til í inngangi grg.

Umr. (atkvgr.) frestað.