19.11.1985
Sameinað þing: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í B-deild Alþingistíðinda. (538)

Eldgos í Kólumbíu

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil taka eindregið undir með hv. 7. landsk. þm. að okkur beri að leggja myndarlega af mörkum í þessum efnum. Við höfum sérstæða reynslu sem er frábrugðin t.d. hinum Norðurlöndunum þannig að við erum um margt aflögufærari. Við erum jafnframt aflögufær hvað varðar fjármuni þegar svona stendur á. Ég legg því eindregið til að þessi aðstoð verði myndarleg og það verði kannað á hvern hátt við getum lagt fram sérstaka aðstoð í sambandi við reynslu okkar af eldgosum.