19.11.1985
Sameinað þing: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (540)

Eldgos í Kólumbíu

Kristín S. Kvaran:

Virðulegi forseti. Ég vil lýsa því yfir af hálfu þingflokks BJ að við erum því mjög fylgjandi að taka þátt í slíkri samstarfsnefnd, sem hér hefur verið hafið máls á, þar sem kannað verði hvernig við getum best orðið að liði í þeim hörmungum sem hafa átt sér stað að undanförnu í Kólumbíu.