20.11.1985
Efri deild: 16. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (607)
127. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Fjmrh. (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Það er að sönnu rétt að það hefur verið stefnumið Sjálfstfl. að komast hjá því að leggja á þennan skatt. Í sjálfu sér er það auðvitað ósæskilegt að mismuna með skattheimtu, eins og í raun og veru er verið að gera með þessum skatti þar sem lagður er eignarskattur á eina tegund atvinnurekstrar með öðrum hætti en á aðrar. Það verður hins vegar ekki hjá því komist vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem uppi eru og þess mikla fjárhagsvanda sem við er að etja að framlengja þennan skatt í eitt ár til viðbótar og við erum reiðubúnir að axla þá ábyrgð í ljósi þeirrar þröngu stöðu.
Vegna ummæla hv. þm. Ragnars Arnalds um lækkun þessa skatts, þá eru það nokkuð misvísandi ummæli vegna þess að þar var fyrst og fremst um það að ræða að lækka skattprósentu til samræmis við lækkandi verðbólgu þannig að greiðslubyrði skattsins yrði sem næst óbreytt þrátt fyrir lækkun verðbólgunnar á milli ára. Það var meginástæðan fyrir þeirri breytingu sem gerð var. Mér þykir rétt að þetta komi hér skýrt og skilmerkilega fram.