20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (622)

5. mál, jarðhitaréttindi

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það er bókað í málaskrá Nd. Alþingis að hinn 18. nóvember hafi það gerst að máli þessu hafi verið vísað til 2. umr. en fellt að vísa tillögunni til sérstakrar nefndar. Ég vil biðja skrifara, hv. þm. Ólaf Þórðarson, að hlusta á segulbandsupptökur af nefndum þingfundi og athuga hvers hann verður vísari eftir þá hlustun.