20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (627)

59. mál, orka fallvatna

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég hef ekkert á móti því að flytja tillögu mína um að vísa málinu til iðnn. hér úr ræðustólnum. Þetta mál hefur verið til meðferðar í iðnn. og við höfum á því víðtæka þekkingu og mikla reynslu í meðhöndlun málsins og ég vona að hún komi að gagni við framhaldandi umfjöllun málsins. Ég geri þess vegna tillögu um að þessu máli verði vísað til iðnn.

Hins vegar, herra forseti, hef ég ekkert á móti því að tillaga flm. um allshn. verði borin undir atkvæði fyrst.