20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (655)

134. mál, álbræðsla við Straumsvík

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég vil af þessu tilefni upplýsa að ég hef gert reka að því að hæstv. fjmrh. yrði hér viðstaddur. Hann hefur sent mér boð um að hann hafi verið búinn að binda sig og ekki átt von á því að þessi fundur yrði nú haldinn. Ég get því ekki tryggt það að hæstv. fjmrh. verði hér. En ég hef einnig gert reka að því að hæstv. menntmrh. verði hér viðstaddur og ég vona að svar við því berist mjög fljótlega.