26.11.1985
Sameinað þing: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (707)

50. mál, rannsóknir við Mývatn

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil láta það koma fram, herra forseti, af minni hálfu í tilefni þeirra orðaskipta sem hér hafa farið fram, sem eru í framhaldi af utandagskrárumræðum um Mývatnsmálið t fyrra, að ég er ekki hvetjandi þess að vald Náttúruverndarráðs verði skert með lagabreytingum.