27.11.1985
Neðri deild: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (771)
145. mál, stjórn fiskveiða
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það var ekki ætlun mín að ræða það mál sem er á dagskrá, en vegna ummæla hv. þm. Guðmundar Einarssonar í tveimur ræðum í kvöld tel ég ástæðu til að fram komi örfá atriði.
Hann hefur haldið því fram að Sjálfstfl. sé að ganga gegn sinni stefnu með því að stærsti hluti þingflokksins styður það frv. sem hér er til umræðu og hefur líkt þessu við það að Sjálfstfl. sé á móti verslunarfrelsi. Hann tók dæmi af því hér í Reykjavík. Hið sama gerði reyndar hv. 5. þm. Vestf.
Í þessu sambandi er rétt að taka það fram að kvótakerfið byggir á því, eins og reyndar stjórn fiskveiða hlýtur að gera, að innflutningur fiskiskipa er bannaður - bannaður vegna þess að stjórnvöld og flestir í landinu hafa talið að um offjárfestingu sé að ræða í íslenskum fiskiskipastól miðað við það aflamagn sem ráðlagt er að taka úr sjó. Það er af þessum ástæðum sem íslenska þjóðin neyðist til að stýra sókninni í fiskistofnana. Ef menn halda fram áróðri eins og komið hefur fram hjá hv. þm. Guðmundi Einarssyni verða menn líka að svara þeirri spurningu hvort þeir vilja opna fyrir innflutning og smíðar á nýjum skipum og þannig stórauka sóknina. Við getum því aðeins talað um fullkomið frelsi í þessum efnum að svo verði gert.
Herra forseti. Ég tel ástæðu til að skýra frá þessu. Það hefur aldrei verið annað sagt af hálfu sjálfstæðismanna en að meginþorri þingflokksins styðji frv. Við vitum um andstöðu í þingflokknum. Sú andstaða er ekki ný. Hún var einnig þegar þetta mál var síðast til umræðu. Það eru skiptar skoðanir í öllum þingflokkunum á þingi nema í BJ sem hefur haft það til siðs að vera á móti málum þegar þeir telja sig græða á því pólitískt. En allir þeir flokkar sem hafa einhverja reynslu af þessum málum hafa mismunandi sjónarmið innan sinna veggja.
Þetta, herra forseti, taldi ég nauðsynlegt að kæmi fram í þessari umræðu.