03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (830)
141. mál, röksemdir fyrir hollenskri hersveit á Keflavíkurflugvelli
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Það er óneitanlega hressandi að hafa fengið hv. þm. Ólaf Ragnar Grímsson aftur til landsins eftir alheimsreisur og friðun alheimsins, en honum hefur sést yfir að fylgjast dálítið með íslenskum málefnum. Eins og hæstv. utanrrh. gat um var sagt frá þessu öllu saman í skriflegri skýrslu hans til Alþingis í fyrra. Og þegar utanrmn. fór út á Keflavíkurflugvöll í heimsókn þangað, ekki heimboð heldur heimsókn, við buðum okkur sjálf að sjálfsögðu, benti utanrrh. okkur á þessa vél. Hún var þar á vellinum. Utanrmn. hefur því vitað allt um þetta mál. Á utanríkismálanefndarfundi fyrir skömmu skýrði Sverrir Haukur Gunnlaugsson í varnarmáladeildinni frá þessu máli. Ráðherrann ætlar að birta bréf og annað slíkt, og gerir það vafalaust, í utanrmn. fyrst og opinberlega síðar ef mönnum sýnist svo. Hér er ekki um nokkurt leyndarmál að ræða mér vitanlega.
Hitt getum við svo rætt við betra tækifæri þar sem menn hafa meiri ræðutíma hvort það sé óeðlilegt að samhæfing sé á milli herja NATO. Við höfum alltaf vitað að svo var. Hér er um að ræða nákvæmlega sömu störf þessarar Orion-vélar, kafbátaleit, og véla Bandaríkjamanna. Ég sé fyrir mína parta ekkert athugavert við að þessi samvinna sé. Þessi vél er undir stjórn Bandaríkjamanna. Hún er undir stjórn varnarliðsins. Það eru aftur á móti Hollendingar þar um borð en ekki Bandaríkjamenn. Það er eini munurinn.