03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (835)

141. mál, röksemdir fyrir hollenskri hersveit á Keflavíkurflugvelli

Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Ég efast um að hv. þm. hafi hlustað á umræðurnar með mikilli athygli vegna þess að það er þegar upplýst í umræðunum að þetta samkomulag felst í bréfaskiptum okkar utanríkisráðherra Hollands.