22.10.1985
Sameinað þing: 5. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í B-deild Alþingistíðinda. (85)
37. mál, heilsugæsla á Vopnafirði
Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Vitanlega gildir það í þessu efni að unnið sé að því, eins og ég efa ekki að gert sé, að fá varanlega úrbót á þessum málum. Það vekur hins vegar nokkra furðu hver tregða virðist vera hjá læknum til að sinna þessu starfi þó að í íhlaupum sé og skýtur nokkuð skökku við það sem sagt hefur verið um það að við værum í raun og veru með offramboð á læknum, en svo þegar til á að taka og leysa vanda til ekki lengri tíma en þetta gengur það vægast sagt illa þrátt fyrir allar tilraunir ráðuneytis og það svo að það er leitað, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, til fyrrv. heilsugæslulæknis þar, sem þekkir vanda þeirra íbúa sem þarna eru allra manna best, til þess að fá úrlausn á þessu. Ég veit að meðan hann er þar er þessum málum vel borgið og vona að á eftir komi fleiri sem gegna þessu starfi þó að æskilegast hefði verið að fá mann til að gegna þessu starfi samfellt allan þann tíma sem heilsugæslulæknirinn, sem þar er skipaður, er í leyfi. En ég treysti sem sagt að á þessum málum verði ráðin sú bót að þetta víðlenda og erfiða hérað búi ekki við öryggisleysi í vetur, sérstaklega með tilliti til þess sem ég sagði áðan um ástandið í héraðinu næst fyrir norðan, í Þórshafnarhéraði.