03.12.1985
Sameinað þing: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (871)
118. mál, námsbrautir á sviði sjávarútvegs
Flm. (Skúli Alexandersson):
Ég þakka hv. stjórnarþingmanni fyrir að koma upp og fjalla um þessa till. okkar og þakka fyrir undirtektir hans við málið.
Hann sagði að af eigin reynslu vissi hann að vinna við fiskvinnslu eða sjávarútveg væri ekki sérlega skemmtileg. Ég held að þetta sé tilfinningalegt og breytilegt á milli einstaklinga. Ég get ómögulega ímyndað mér að það sé leiðinlegra að vinna í fiski en að vinna í kjöti t.d. En það má ekki vinna í kjöti nema hafa ákveðið nám að baki. Sá er skyldugur til að heita kjötiðnaðarmaður og stunda nám í ákveðnum skólum til að mega annast slíka hluti. Eins er það ef hann ætlar að hnoða brauð. Þá ber honum skylda til að ganga ákveðinn menntaveg og afla réttinda til að sinna því starfi. Ég held að það þurfi að lyfta fiskvinnslunni og sjómennskunni. Við höfum oft og tíðum heyrt að kennarar segi við baldinn ungling: Ef þú stendur þig ekki í því að læra ferðu bara í fiskinn. Þessu ætti að breyta á þann veg að farið yrði að segja við unga fólkið: Ef þú ætlar í fiskinn verður þú að læra. - Ég held að þetta sé jafnvel eitt af því sem okkur er hvað nauðsynlegast að stefna að til þess að lyfta bæði landsbyggðinni og lyfta þessari atvinnugrein.
Annan þátt nefndi hv. ræðumaður. Það var að heyrst hefur að áhugi sé fyrir því hjá sumum ráðherrum að setja Fiskvinnsluskólann og Stýrimannaskólann undir sjútvrn. Þeir telja að líklegra sé að með því móti yrði auknu fjármagni veitt til þessara skóla og benda þá gjarnan á samanburð við búnaðarskólana. Mér finnst að þá sé verið að vissu leyti að hlaupa frá vandanum ef þarf að fara að færa skólana, taka þá undan menntmrn. Nær væri að viðurkenna þá staðreynd að við verðum að láta meira fjármagn af hendi rakna til þessara skóla. Og í öðru lagi: Við verðum að breyta þessum skólum. Við þurfum fyrst og fremst að láta þessa skóla, Fiskvinnsluskólann og Stýrimannaskólann, vera eins konar háskóla í þessum greinum. Við þurfum að láta undirbúningsnámið eiga sér stað, eins og tillaga okkar gerir ráð fyrir, í fjölbrautaskólunum. Fyrri hluti náms til stýrimannafræðslu og vélstjórafræðslu eigi sér stað á heimavettvangi, í deildum fjölbrautaskólanna og í fjölbrautaskólunum sjálfum. Sama eigi sér stað í sambandi við fiskvinnsluna. Fjölbrautaskólarnir geti útskrifað stúdenta á fiskvinnslu- eða sjómannsbraut og þeir síðan farið annaðhvort til háskólanáms í útvegsfræðum við Háskóla Íslands eða til framhaldsnáms í fiskvinnsluskóla og stýrimannaskóla eftir að hafa lokið fornámi á heimavettvangi.
Ég ítreka að ég þakka þær undirtektir sem þingmaðurinn lýsti við till.
Umr. (atkvgr.) frestað.