09.12.1985
Neðri deild: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í B-deild Alþingistíðinda. (963)

142. mál, áfengislög

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Í framhaldi af ræðu hv. flm. vil ég staðfesta að dómsmrh. hefur þegar skipað nefnd fjögurra þingmanna úr stjórnarflokkunum, sem starfar undir stjórn ráðuneytisstjórans í dómsmrn., og sú nefnd fjallar einmitt um þetta atriði þannig að búast má við því að innan tíðar verði lagt fram á Alþingi stjfrv. um þetta mál.