10.12.1985
Sameinað þing: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (967)
Um þingsköp
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Það skal tekið fram, sem augljóst er, að harla erfitt verður að fá afgreiðslu fyrir n.k. fimmtudag á máli því sem er á þskj. 225 og hv. 5. þm. Austurl. ræddi um. Það er augljóst að í dag verður ekki tími nema fyrir þá tvo fundi sem ráðgerðir eru. Næsti fundur Sþ. verður n.k. föstudag. Það er svo ákveðið vegna þess að þá fer fram 2. umr. fjárlaga sem upphaflega var gert ráð fyrir að yrði á fimmtudag. Það verður naumast séð hvernig hægt er að verða við óskum hv. 5. þm. Austurl. þegar svo er ástatt sem nú er. Raunar kæmi slíkt ekki til álita nema svo væri að það væri samstaða í þinginu um afgreiðslu þessarar till. Ég segi: til álita. Það er þó ekki þar með víst að það væri möguleiki að framkvæma þessa ósk.
Þetta vil ég að hér komi fram og ég vænti þess að allir hv. þm. skilji hvernig mál þessi liggja fyrir. Og það mál sem hér hefur verið gert að umræðuefni er ekki á dagskrá fundarins, hvorki þessa fundar né fundarins síðar í dag.