02.12.1986
Sameinað þing: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (1081)

163. mál, úrbætur í ferðaþjónustu

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. fyrirspyrjanda að í þessu svari kemur ekki allt fram, enda er tími takmarkaður, en öllum þessum atriðum, sem fyrirspyrjandi ræddi um, verða gerð skil í væntanlegri skýrslu. Við leggjum áherslu á að þessari skýrslu verði lokið í janúar þó að maður viti aldrei með vissu hversu langan tíma tekur að ganga frá ýmsu því að það er mjög viðamikil vinna sem þarna á sér stað.