20.10.1986
Neðri deild: 4. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (118)

27. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra

Flm. (Málmfríður Sigurðardóttir):

Herra forseti. Hér er mælt fyrir frv. til l. um lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra, breytingu á lögum nr. 55 frá 9. júní 1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Auk mín er flm. hv. þm. Kristín Halldórsdóttir. Frv. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„1. gr. Á eftir 6. gr. laganna (sbr. lög nr. 58/1985) kemur ný grein er orðast svo:

Heimavinnandi húsmæður sem ekki gegna öðru starfi, svo og þær heimavinnandi húsmæður sem eru í minna en hálfu starfi utan heimilis, skulu öðlast aðild að Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda. Ríkissjóður greiðir mánaðarlega iðgjald til sjóðsins vegna hverrar heimavinnandi húsmóður er nemi 6% af 26 680 kr. miðað við 1. júní 1986 og breytist sú upphæð eins og laun skv. 9. flokki kjarasamnings Verkamannasambands Íslands, efsta starfsaldursþrepi, og viðkomandi sveitarfélag 4% af sömu upphæð.

2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Í grg. með frv. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Frv. þessu er ætlað að leiðrétta kjör heimavinnandi húsmæðra, þeirra er enn ekki hafa öðlast rétt til aðildar að lífeyrissjóði, með því að leitast við að tryggja hag þeirra betur á efri árum.

Með hugtakinu heimavinnandi húsmóðir er í fyrsta lagi átt við konur sem ekki gegna öðru starfi en umsjón heimilis og í öðru lagi þær sem hafa heimilisumsjón að aðalstarfi en vinna minna en hálft starf utan heimilis. Hugtakið nær vitaskuld til þeirra karla sem húsmóðurstörfum gegna.

Hvað fyrri hópinn varðar er ætlunin að ríkissjóður greiði þau 6% af iðgjaldi sem atvinnurekanda er skylt að greiða, en viðkomandi sveitarfélag greiði þau 4% sem eru hluti launþegans. Iðgjaldsgreiðslan sé miðuð við 9. launaflokk Verkamannasambands Íslands sem síðan 1. júní s.l. er 26 680 kr. Þessi launaflokkur er lagður til grundvallar greiðslu fæðingarorlofs og er ekki óeðlilegt að sama viðmiðun sé viðhöfð á meðan ekkert mat liggur fyrir á störfum húsmæðra.

Það skal tekið fram að þetta er aðeins viðmiðun en engan veginn endanlegt mat á verðmæti þeirra starfa sem um ræðir.

Sé húsmóðir í hlutastarfi utan heimilis þar sem atvinnurekandi greiðir iðgjald í lífeyrissjóð hennar vegna og hún að sínu leyti greiði ríkissjóður og sveitarfélag það sem á vantar til að hún hljóti full lífeyrisréttindi. Iðgjaldið greiðist til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda þar til öðruvísi verður ákveðið.

Stofnun sameiginlegs lífeyrissjóðs allra landsmanna nýtur nú vaxandi fylgis bæði innan þings og utan. Það er mikið þjóðþrifamál og má ætla að lífeyrismál heimavinnandi fólks verði best leyst innan þess ramma, en svo brýnt er að koma þessu máli í betra horf að ekki verður beðið eftir annarri skipan á lífeyrissjóðamálum þar sem búast má við að það taki einhver ár.

Á undanförnum árum hafa verið gerðar tilraunir í þá átt að lagfæra réttleysi húsmæðra til lífeyris. Breyting á lögum nr. 55 frá 1985 er áfangi á þeirri leið en nær aðeins til takmarkaðs hóps, þ.e. þeirra húsmæðra sem hverfa frá launuðum störfum um stundarsakir og þá yfirleitt vegna barnsburðar og til að annast fjölskyldu og heimili.

Þáltill. um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks, sem fram til þessa hafa verið bornar fram, hafa ekki hlotið samþykki.

Flm. þessara þingmála er það sameiginlegt að þeir sjá ekki aðrar leiðir til þess að heimavinnandi konur nái lífeyrisréttindum en að þær greiði iðgjald í sjóðinn. - Konur sem enginn greiðir laun. Hvar eiga þær að taka þessa fjármuni?

Þetta frv. á að leysa þann vanda. Fjölskyldan er grunneining hvers þjóðfélags og höfuðábyrgðin á umönnun hennar og rekstri heimilisins hefur undantekningarlítið hvílt á herðum kvenna og á þeim eina vettvangi virðist þeim hafa verið treyst til að stjórna, enda er starfið ekki metið til launa. Því er það að þegar þær konur, sem eingöngu - eða að mestu leyti - hafa stundað þessi störf, koma á eftirlaunaaldur, þá njóta þær ekki greiðslu úr lífeyrissjóðum.

Gera menn sér í raun grein fyrir því hvílíkar upphæðir heimavinnandi konur spara þjóðfélaginu með því að ala upp börn, annast sjúka og aldraða, vanheila og þroskahefta og að reka þá einingu sem heimilið er? Öll koma þessi störf samfélaginu til góða og þegar eitthvað bjátar á - kona veikist eða fellur frá - sést hvers virði þau eru í beinhörðum peningum. Í ljósi þeirrar staðreyndar sýnist eðlilegt að ríki og sveitarfélög sjái um greiðslu á lífeyrissjóðsiðgjaldi heimavinnandi húsmæðra. Sú upphæð gæti aldrei orðið nema brot af því sem dagvistun og barnagæsla fyrir þær kostaði ásamt því að greiða fyrir það fólk á stofnunum sem annast er um í heimahúsum.

Yrði frv. þetta að lögum væri það spor í þá átt að auka virðingu fyrir þeim störfum sem lúta að varðveislu og umönnun fjölskyldu og heimilis húsmóðurstörfum.

Það færi vel á því að þeir karlmenn sem sitja löggjafarstofnun þjóðarinnar sýndu í verki að þeir virtu störf mæðra sinna og eiginkvenna og mætu þau svo að vert væri að þær nytu hagsbóta á efri árum vegna þess sem þær hafa lagt fram til uppbyggingar samfélagsins“.

Það mál sem hér er flutt er vissulega mannréttindamál, viðurkenning á gildi starfa sem unnin hafa verið í kyrrþey án greiðslu, og með því er tekið á einum þætti þess, þess sem nær til heimavinnandi fólks, þeirra kjara sein heimavinnandi fólk býr við. Heimavinnandi húsmóðirin, móðirin, vinnur störf sín án þess að krefjast launa. Heimavinnandi húsmæður þessa lands eru þeir þegnar þjóðfélagsins sem gefa vinnu sína. Þær annast börn sín og heimili í kyrrþey. Fyrir það að ala upp nýja kynslóð og vera máttarstólpar þjóðfélagsins í því að varðveita fjölskylduna fá þær ekki neitt í áþreifanlegum verðmætum. Í skýrslum um þjóðarframleiðslu er hlutur þeirra einskis metinn. Það er ekki fyrr en eitthvað kemur fyrir, húsmóðir veikist eða fellur frá, sem í ljós kemur hvers virði vinna þeirra er í beinum fjármunum. Fengju húsmæður laun fyrir störf sín eins og fóstrur, félagsráðgjafar, hjúkrunarkonur, matsveinar og ræstingakonur eru það miklar upphæðir og það ekki endilega vegna þess að þessi störf séu svo vel launuð heldur hvílíkt magn það er sem þarna liggur að baki. En húsmóðurstörf taka ómótmælanlega til allra þessara starfsgreina og margra fleiri og raunar á öllum tímum sólarhrings. Húsmæður eiga fáar frístundir og þær hafa viðveruskyldu allan sólarhringinn.

Hið göfuga móðurhlutverk er hafið til skýjanna í afmælisgreinum og eftirmælum, en þegar til þeirra kasta kemur að meta störf mæðranna þannig að það verði þeim til áþreifanlegra hagsbóta verður fátt um framkvæmdir. Ótrúlega margt hefur orðið þeim málum að fótakefli. T.d. hefur reynst erfitt að finna þeim stað í lífeyrissjóðakerfinu og sá þröskuldur sem fyrri tilraunir til þess hafa staðnæmst við er hvernig og hver ætti að annast iðgjaldagreiðslu til lífeyrissjóða. Það má þó vera augljóst að það fólk sem engin laun þiggur getur ekki greitt eitt eða neitt.

Talað hefur verið um að eiginmaður eða sambýlismaður greiði lífeyrissjóðsiðgjald vegna konu sinnar, en ég held að málinu sé stefnt inn á varhugaverða braut og þar með umræðum um fjölskylduna yfirleitt með því að líta á heimilisföður sem atvinnurekanda. Það hugtak virðist mér vera andstætt grundvallarhugmyndum um fjölskylduna. Einnig er vert að hafa í huga nú, þegar viðurkennt er að ein fyrirvinna dugir sjaldnast til að framfleyta heimili, að iðgjaldsgreiðsla í lífeyrissjóð vegna maka, 10% af launum, er umtalsverð skerðing á tekjum heimilisins sem alls ekki allir hafa efni á að greiða þó að þeir vildu. Þessu frv. er ætlað að höggva á þann hnút á þann hátt að ríki og sveitarfélög greiði lífeyrissjóðsiðgjöld fyrir heimavinnandi húsmæður til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda þar til öðruvísi verður ákveðið.

Lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn er mál sem hefur vaxandi fylgi. Fyrir þessu þingi liggur þáltill. um þjóðaratkvæðagreiðslu um það mál. Samtök um kvennalista styðja þetta mál eindregið. Næði það fram að ganga teljum við að þessu réttindamáli sé best borgið innan þess ramma.

Herra forseti. Ég hef nú dregið fram nokkur af þeim rökum sem styðja mál þetta og í ljósi þeirra vil ég árétta að við teljum rétt að ríkissjóður og sveitarfélög annist þessar greiðslur vegna heimavinnandi húsmæðra. Störf þeirra við uppbyggingu og varðveislu fjölskyldunnar eru vissulega í þágu þjóðfélagsins alls og þannig ber að skoða þau.

Að lokinni umræðu, herra forseti, legg ég til að þessu máli verði vísað til hv. félmn.