04.12.1986
Sameinað þing: 25. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1359 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)

Afstaða til stöðvunar kjarnorkuvígbúnaðar

Haraldur Ólafsson:

Herra forseti. Ég vil algerlega mótmæla því að af hálfu okkar framsóknarmanna sé verið að koma í veg fyrir að þessi tillaga komi til atkvæða hér í þinginu. Ég gat þess fyrr í dag að fulltrúar flokksins í utanrmn. mundu skila nál. um þessa tillögu. Það þýðir að af okkar hálfu leggjum við til að málið komi hér til afgreiðslu.