20.10.1986
Neðri deild: 4. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (126)
27. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af ræðu hv. síðasta ræðumanns. Ég verð nú að segja fyrir mig að ekki kynni ég við að vera kallaður húsmóðir eins og hv. þm. mælist til. Það er kannske bara ég einn sem ekki vill ganga undir slíku heiti. Ég tel mig ekki geta innt þá skyldu af höndum sem móðir gerir í þessu tilviki. Ég ætla mér það ekki. Og þess vegna ber ég kannske miklu meira traust til mæðra sem kvenna heldur en þó við séum að tala um föðurinn líka. Það getur nefnilega enginn að mínu viti sinnt móðurhlutverkinu nema móðirin sjálf. Og það ber að hafa í huga. Það segir náttúrlega í greinargerðinni að þarna sé átt við kvenfólkið. Hafi hv. þm. lesið greinargerðina alla þá þýðir ekki að vera að breyta því. Og ég ætla að lesa, með leyfi forseta, niðurlagið og þá skilja menn það sem hér er um að ræða.
„Það færi vel á því að þeir karlmenn“ - ekki fer nú á milli mála hverjir það eru - „sem sitja löggjafarstofnun þjóðarinnar sýndu í verki að þeir virtu störf mæðra sinna og eiginkvenna og mætu þau svo að vert væri að þær nytu hagsbóta á efri árum vegna þess sem þær hafa lagt fram til uppbyggingar samfélagsins.“
Hvað segir þetta? Hér er ekki verið að tala um karla sem mæður eins og hv. þm. var að tala um. Hér er verið að tala um mæðurnar sem slíkar. Og það getur enginn komið í stað móður eða gegnt móðurhlutverki annar en móðirin sjálf. Það getur faðir ekki að mínu viti. Og þess vegna legg ég miklu meira upp úr þessu að tala um móðurhlutverk í þessum efnum en eigi að síður legg ég líka áherslu á það að karlmenn eiga ekkert - karlfeður skulum við segja þá - eiga ekkert að vera afskiptir. Þeir eiga að njóta hins sama.
Og ég segi enn: Þetta finnst mér miður hjá þeim Kvennalistakonum hv. að þær eru allt of einstrengingslegar í þessum efnum. Þær horfa til einnar áttar. Þær þurfa sem sé að vera víðsýnni en hingað til hefur sést úr þeirra herbúðum.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.