08.12.1986
Neðri deild: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (1268)

223. mál, lögreglumenn

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Þar sem mál þetta er í eðli sínu hvorki flókið né vandasamt og virðist hvorki þurfa aðstoðar reiknisérfræðinga né tölvuþjónustu, fjallar aðeins um hvort lögreglumenn skuli hafa verkfallsrétt eða ekki, tel ég það ekki svo flókið að það sé ekki hægt að vísa því til allsh. og segi nei.