08.12.1986
Neðri deild: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (1270)

223. mál, lögreglumenn

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Skoðanaágreiningur, sem upp er kominn milli forseta deildarinnar og hv. 1. þm. Norðurl. e., hlýtur að verða tekinn hér til örlítillar umræðu. Með þeirri ákvörðun deildarinnar að vísa málinu til fjh.- og viðskn. er að sjálfsögðu verið að skapa þá hefð að mál um lögreglumenn fari eftirleiðis þangað.