10.12.1986
Efri deild: 18. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (1305)

Útbýting mála í deildum

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Hæstv. forseti. Ég get tekið undir það, sem hér hefur komið fram, að nauðsynlegt er að reyna að jafna málum milli deilda, en það er stundum dálítið erfitt að sjá fyrir hvernig málin ganga. Að gefnu tilefni vil ég benda á að ég hef lagt fram í Ed. bæði umfangsmikil frv. og óskað eftir a.m.k. að eitt þeirra næði sem allra fyrst fram að ganga.