10.12.1986
Efri deild: 18. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1445 í B-deild Alþingistíðinda. (1308)

Útbýting mála í deildum

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Forseti getur ekki á sér setið að bæta nokkru við. Ég held að það sem hv. 2. þm. Austurl. hafi átt við muni vera það hvernig þeim málum er skipt á milli deilda sem fyrir liggja. Það getur forseti tekið undir að þeirri skiptingu hefði mátt vera öðruvísi fyrir komið til þess að hægt væri að nýta betur starfskrafta deildarinnar.