13.12.1986
Sameinað þing: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1680 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)

1. mál, fjárlög 1987

Svavar Gestsson:

Ég óska eftir því, herra forseti, að fram fari sérstök atkvæðagreiðsla um málsliðinn „Heimildin tekur einnig til búnaðar sem nauðsynlegur er til móttöku á truflaðri útvarpssendingu slíkra leyfðra útvarpsstöðva.“