21.10.1986
Sameinað þing: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í B-deild Alþingistíðinda. (144)

35. mál, kjarnorkuverið í Dounreay í Skotlandi

Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Vegna þessa máls vil ég geta þess

að umhverfismálaráðherrar Norðurlanda hafa verið að fjalla um það ásamt fleiri málum í sambandi við bæði kjarnorku og mengunarmál. Það stendur yfir fundur einmitt nú, í dag eða á morgun, í Osló þar sem m.a. þessi mál eru á dagskrá. Fulltrúar frá Íslandi eru þar staddir og munu gefa skýrslu þegar þeir koma heim