17.12.1986
Efri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1830 í B-deild Alþingistíðinda. (1669)

228. mál, Kjaradómur

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hl. fjh.og viðskn. um frv. til l. um Kjaradóm. Því er eins háttað með þetta mál og þau sem áður hafa verið hér til umræðu að þetta mál er flutt í tengslum við frv. til l. um kjarasamninga opinberra starfsmanna.

Nefndin hefur rætt frv. og leggur meiri hl, til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Nd. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hefur skilað séráliti og hv. þm. Ragnar Arnalds og Stefán Benediktsson skrifa undir nál. með fyrirvara.