17.12.1986
Neðri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1903 í B-deild Alþingistíðinda. (1763)
231. mál, almannatryggingar
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Fyrst út af orðum hv. 10. landsk. þm. Guðrúnar Helgadóttur. Hv. þm. taldi að þær hugmyndir sem ég setti fram væru í trássi við hugmyndir sem liggja að baki almannatryggingalögunum og þm. var tíðrætt um mismunun. Þetta er mesti misskilningur hjá hv. þm. Ef það ætti að fara út í þá sálma að því er varðar almannatryggingalöggjöfina hvort væri um mismunun að ræða á hinum og þessum stöðum í almannatryggingalöggjöfinni mætti finna hin og þessi ákvæði þar sem er um hreina mismunun að ræða. Ég skal til að mynda nefna fyrir hv. þm. að því er varðar ekkju- og ekkilsbætur: Af hverju fá ellilífeyrisþegar ekki greiddar þessar bætur? Hér er um eina tegund af mismunun að ræða. Að því er varðar ákvæði 13. gr. má segja kannske að þar sé líka um mismunun að ræða. Ég veit ekki hvort hv. þm. hefur staðið að því að samþykkja 13. gr. almannatryggingalaganna, en hún kveður á um að það megi greiða maka elli- og örorkulífeyrisþega makabætur ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Þessar makabætur eru greiddar í þeim tilfellum þar sem maki er bundinn heima yfir maka sem er sjúkur. Og þá má spyrja: Hvað með einstæða foreldra? Af hverju fá þeir ekki slíkar bætur ef viðkomandi einstætt foreldri er bundið heima yfir sjúku barni? Víða má því leita að mismunun í almannatryggingalöggjöfinni og tel ég nú að þetta sé ekkert annað en hártogun hjá hv. þm. Sú till. sem ég lagði hér til er beint framhald af því sem fyrir er í 13. gr. Við höfum lagaákvæði sem kveður á um að það megi greiða makabætur ef viðkomandi er bundinn yfir sjúkum maka heima. Það er verið að leiðrétta í frv. ráðherra. Koma til móts við þá maka þar sem heimilin missa tekjur, þar sem lífeyrir fellur niður þegar maki dvelst langdvölum á stofnun, þannig að hér er ekki um annað en hártogun að ræða. Ég fullyrði út af orðum hæstv. heilbrmrh. að það vandamál sem á að leysa með þessu frv. er að hluta til óleyst enn þá þegar skilinn er eftir sá hópur sem vissulega getur átt við að glíma erfiðar fjárhagsaðstæður jafnvel þó að börn séu ekki á heimilinu þegar kannske stór hluti af tekjum heimilisins fellur niður af því að maki viðkomandi dvelst á stofnun.
Hæstv. ráðh. vildi einnig meina að hér væri um misskilning að ræða að því er tillögur mínar varðar. Ég hef íhugað ákvæði hæstv. ráðh. og þá tillögu sem ég hef lagt til, ef við horfum bara á að leysa vandamál þeirra elli- og örorkulífeyrisþega þar sem börn eru til staðar, hvort það væri eðlilegra að fella þetta undir ákvæðið um barnalífeyri eða gera þessar viðbætur á greininni um mæðra- og feðralaun. Ég hef borið þetta undir þá sem ég tel að gleggst þekki þann frumskóg sem almannatryggingakerfið er. Þeir sem ég hef borið þetta undir eru allir sammála um að það væri miklu eðlilegra að greiða í þessu tilfelli tvöfaldan barnalífeyri vegna þess að í ákvæðinu um barnalífeyri eru til staðar nú þegar ákvæði sem snerta þessa hópa, þ.e. elli- og örorkulífeyrisþega og þá sem sæta gæslu- eða refsivist. Þar eru ákvæði til staðar. Og barnalífeyrir er ekki einstaklingsbundinn. Hann er líka greiddur þegar tveir eru framfærendurnir. En að því er varðar mæðralaunin er hreinlega verið að breyta eðli og forsendum sem að baki þeirri grein liggja. Ég tel mig hafa borið þetta undir menn sem mjög vel þekkja til almannatryggingalaga.
Nú má hæstv. ráðh. ekki misskilja mig að ég ætli á einn eða annan hátt að tefja afgreiðslu þessa máls. Ég á sæti í þeirri nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar og ég mun síður en svo tefja fyrir því. Það var í góðri meiningu gert að benda á þá leið sem ég lagði hér til af því að ég taldi það að málið mætti betur fara með þeim hætti.
Ég veit ekki hvort ég mun flytja brtt. við 2. umr. málsins. Ég mun a.m.k. ræða þetta mál í nefnd og hugleiða hvort ég flyt brtt. um málið. Mér heyrist að hún hafi ekki mikinn hljómgrunn. En ég ítreka að hér er um miklu eðlilegri leið að ræða sem hefði komið miklu meira til móts við þann hóp sem ráðherra er að reyna að bæta um hjá, hvort sem sú leið hefði verið farin að greiða tvöfaldan barnalífeyri eða að gera þá viðbót sem ég hef lagt til á 13. gr. , um makabætur.