18.12.1986
Efri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1972 í B-deild Alþingistíðinda. (1846)

Afgreiðsla mála í efri deild

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Fundum þessarar hv. deildar hefur verið frestað til kl. 20.30 í kvöld. Ég hef heyrt að hv. Nd. muni ekki halda fundi í kvöld og að þar eigi eftir að vinna þó nokkuð mikil nefndarstörf til þess að deildin geti haldið áfram störfum. Ég spyr því hv. forseta hvort nokkur ástæða sé til þess nú í annað skiptið í röð að halda kvöldfund hér í hv. deild. Greinilegt er að á næsta kvöldi, föstudagskvöldi, verður hér kvöldfundur þannig að æskilegt væri að deildarþingmenn slyppu við það að hafa kvöldfund í kvöld. Ég sé í sjálfu sér enga ástæðu til þess að í þessari hv. deild verði kvöldfundir frekar en í hv. Nd.