18.12.1986
Efri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1976 í B-deild Alþingistíðinda. (1860)
Afgreiðsla mála í efri deild
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég vil að það komi skýrt fram að hér er ekki alfarið og eingöngu um óskir manna að ræða heldur var það niðurstaðan af sameiginlegum fundi forseta og þingsflokksformanna að þingstörfin gætu gengið fyrir sig með þessum hætti, þ.e. að fjárlagaumræðan hæfist í Sþ. á morgun kl. 14 og síðan yrðu deildafundir um kvöldið þar sem væntanlega yrði hægt að ljúka við þau mál sem eftir eru. Ef það reynist ekki unnt er auðvitað unnt að halda deildafundum áfram á laugardagsmorgun og er ekkert því til fyrirstöðu. Ég held að það sé kannske ekki eingöngu vegna óska eða með tilliti til þm. heldur sé einnig verið að taka eðlilegt tillit til starfsfólks Alþingis.