18.12.1986
Neðri deild: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1984 í B-deild Alþingistíðinda. (1889)

258. mál, norræn fjárfestingarlán

Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 407 um frv. til l. um ábyrgð vegna norrænna fjárfestingarlána til útflutningsverkefna. Þetta er nál. frá fjh.- og viðskn. sem mælir einróma með samþykkt frv. Guðrún Agnarsdóttir, sem sat fundi nefndarinnar, er samþykk afgreiðslu málsins.