18.12.1986
Neðri deild: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1995 í B-deild Alþingistíðinda. (1910)

Afgreiðsla frv. um álagningu tímabundinna gjalda

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Því var heitið í fjh.- og viðskn. í morgun að 5. dagskrármálið, álagning tímabundinna gjalda 1987, yrði ekki tekið fyrir fyrr en ákveðin gögn væru komin. Minni hl. hefur ekki gefist kostur á því að skila nál. þannig að ég mótmæli því að málið sé tekið fyrir hér.