22.10.1986
Neðri deild: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (197)
27. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra
Forseti (Ingvar Gíslason):
Það var tillaga flm. að málið færi til félmn. Forseti athugaði þetta og fannst við fyrstu sýn að e.t.v. væri eðlilegra að þetta færi tll fjh.- og viðskn. vegna þess að það fjallar vissulega um lífeyrisréttindi, en við nánari skoðun og athugun á þessu máli kom í ljós að hér er, eins og hv. 3. þm. Reykv. var að benda á, um að ræða breyting á lögum nr. 55 frá 9. júní 1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Augljóst er að þessi lög eru félagsmál. Það er rétt, sem fram kom hér hjá síðasta ræðumanni, að breytingar við þessi lög hafa jafnan farið tll félmn. Þess vegna teldi forseti rétt að halda þeirri stefnu, sem flm. hefur haft uppi um þetta, að vísa málinu til félmn. Hins vegar verður deildin að skera úr um þetta og ég spyr hv. flm. hvort hann hafi nokkuð við það að athuga áður en gengið verður til atkvæða.