20.12.1986
Neðri deild: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2203 í B-deild Alþingistíðinda. (2047)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Frsm. meiri hl, fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Svo sem getið var um í nál. meiri hl., þá leggjum við fram brtt. hér við 3. umr.

Það er í fyrsta lagi við 18. gr., að í stað 100 millj. komi 130 millj. Þetta er breyting á Framkvæmdasjóði fatlaðra.

Við 26. gr. Í stað 428 millj. komi 465. Þetta er hækkun á Atvinnuleysistryggingasjóði.

Og við 28. gr. Í stað 722,5 millj. komi 820 millj. Þetta er hækkun á Jöfnunarsjóði.