20.12.1986
Efri deild: 30. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2211 í B-deild Alþingistíðinda. (2072)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég þarf ekki að vekja athygli á því í framhaldi af því sem hv. síðasti ræðumaður sagði að í gustukaskyni hafa þeir hækkað framlagið um 30 millj. sem er langtum of lágt miðað við það sem þarf og langt frá því sem lögin segja. Guð hjálpi ykkur þegar þið farið að sofa í kvöld.