20.12.1986
Efri deild: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2221 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)

Þingfrestun

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Komið er að lokum síðasta fundar þessarar hv. deildar fyrir jólahlé. Ég þakka hv. þingdeildarmönnum fyrir ánægjulegt og gott samstarf sem hefur greitt fyrir störfum í deildinni og hefur ekki síst reynt á það nú hin síðustu dægur. Ég óska hv. þingdeildarmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Einnig óska ég skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki öllu gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári um leið og ég þakka þeim ánægjulegt samstarf og fyrirgreiðslu alla sem unnin er við erfiðar aðstæður og hefur ekki síst reynt á það hin síðustu dægur. Þeim hv. þingdeildarmönnum sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári.