20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2229 í B-deild Alþingistíðinda. (2118)

1. mál, fjárlög 1987

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Fyrir hálfu öðru ári samþykkti Alþingi einróma að stórauka framlög til þróunarsamvinnu. Þróunarsamvinnustofnun Íslands þarf til sinna verka á næsta ári 229 millj. kr. Till. fjvn. um 30 millj. kr. framlag til stofnunarinnar gengur þvert á ályktun Alþingis og þar að auki er útilokað að stofnunin geti mætt skuldbindingum sínum með þessum 30 millj. kr. Til þess þarf að lágmarki það fé sem þessi till. kveður á um og þess vegna og í samræmi við ályktun Alþingis segi ég já.