20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2230 í B-deild Alþingistíðinda. (2126)

1. mál, fjárlög 1987

Helgi Seljan:

Herra forseti. Ef svo fer sem horfir að þessi till. verði felld er það þinghneyksli í sömu andrá og menn eru að sóa peningum, eins og þeir voru að gera núna áðan, í reiðhöll og stóðhestastöð. Ég hlýt að segja já við þessari till.