20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2233 í B-deild Alþingistíðinda. (2140)
1. mál, fjárlög 1987
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Sjúkraflug er að meginhluta greitt af almannatryggingum og þau fyrirtæki sem annast sjúkraflug hafa þar tryggan tekjustofn þess vegna. Þær fjárhæðir, sem hafa verið litlar á fjárlögum, sem skipt hefur verið á milli einstakra flugfélaga í þessu skyni eða einkaaðila, hafa verið þannig að þær hafa jafnvel runnið til fyrirtækja sem hafa haft mjög góða afkomu og erfitt að greina á milli hvaða aðilar skyldu fá þetta fé og hverjir ekki. Það hefur þess vegna orðið niðurstaða í meiri hl. nefndarinnar að réttast væri að fella þennan lið niður. Ég segi nei.