20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2240 í B-deild Alþingistíðinda. (2174)

Þingfrestun

Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég að tilskildu samþykki Alþingis veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 109. löggjafarþings, frá 19. des. 1986 eða síðar ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 19. jan. 1987.

Gert í Reykjavík, 17. desember 1986.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.“

Með tilvísun til þess umboðs sem mér er þannig veitt og til samþykktar Alþingis lýsi ég því hér með yfir að fundum þessa Alþingis, 109. löggjafarþings, er hér með frestað. Alþingi mun verða kvatt saman að nýju eigi síðar en 19. jan. n.k.

Ég vil nota tækifærið og óska öllum hv. alþm. og starfsmönnum Alþingis svo og Íslendingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.

1