20.01.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2344 í B-deild Alþingistíðinda. (2243)
241. mál, samgönguleiðir um Hvalfjörð
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Þeir sem fara frá Reykjavík um Hvalfjörð til Vestur- og Norðurlands þurfa óneitanlega að leggja nokkuð langan krók á leið sína með því að fara fyrir Hvalfjörð. Á hinn bóginn er þess að geta að vegurinn fyrir fjörðinn hefur tekið miklum stakkaskiptum frá því sem áður var og fer sífellt batnandi. En aðeins til þess að nefna það að þessi mál eru í sífelldri athugun skal ég geta þess að kl. 1 n.k. mánudag munu allir þm. Vesturlands- og Reykjaneskjördæma hittast í Þórshamri og ræða einmitt þetta málefni, um samgönguleiðir og samgöngubætur fyrir Hvalfjörð. Fer vel á því nú þegar í hönd fer umræða og afgreiðsla á nýrri vegáætlun.