20.01.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2349 í B-deild Alþingistíðinda. (2251)
248. mál, yfirlýsingar í tengslum við kjarasamninga
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Því miður er allt of skammur tími til að ræða þessi mál í framhaldi af fsp., en ég vil upplýsa þá sem ekki gera sér grein fyrir því að það ákvæði sem hér er um að ræða í kjarasamningum er tilkomið vegna hagsmuna neytenda.
Mörgum er fyrirmunað að skilja það að neytendur hafa nokkuð með verðlag að gera. Ég tel að minna máli skipti hvað framleiðendur segja í ýmsum tilvikum. Við erum mjög andvígir einokun og stjórnun í þessum tilvikum og teljum að það verði til þess að hækka verð vörunnar allverulega.
En í tilefni af því sem hæstv. forsrh. sagði áðan, að fyrirhugað væri að framleiðendur verðu hluta af eða öllum endurgreiðslum af fóðurskatti, 15% mun það vera að ég held, til þess að styrkja útflutning á hænsnakjöti (Gripið fram í: Kjúklingakjöti.) eða kjúklingakjöti spyr ég: Hvers vegna er þetta kjöt ekki sett á innanlandsmarkað? Og ég spyr aftur: Hvaða verð fæst fyrir vöruna erlendis? Er ástæða til að ætla að svona viðskipti borgi sig? Er ekki eðlilegra að þetta kjöt verði sett á innanlandsmarkað og eigi þá þátt í því að lækka verð vörunnar til neytenda?