27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2539 í B-deild Alþingistíðinda. (2351)
199. mál, tekjur ríkissjóðs af rekstrarvörum bænda
Fyrirspyrjandi (Árni Johnsen):
Herra forseti. Ég ber fram fsp. til fjmrh. um tekjur ríkissjóðs af rekstrarvörum bænda. Spurt er:
„1. Hverjar eru tekjur ríkissjóðs af rekstrarvörum bænda á árinu 1985?
2. Hver er uppsafnaður söluskattur af landbúnaðarvörum á árinu 1985?"
Í fyrsta lagi er spurt: „Hafa íslensk stjórnvöld tekið afstöðu til þess hvort þau samþykkja að kosta rekstur þeirra jarðskjálftamæla á Suðurlandi sem norrænir jarðskjálftafræðingar hafa sótt um styrk til hjá Norðurlandaráði?" Þar er um að ræða um það bil 6 millj. kr. sænskra. Og spurt er hvort tekin hafi verið afstaða til þess hvort þessir mælar verði settir upp.
Í öðru lagi er spurt: „Hvernig er áætlað að þessi tækjabúnaður nýtist best við forvarnir og fræðslustarf?"