02.02.1987
Efri deild: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2657 í B-deild Alþingistíðinda. (2467)

291. mál, leigunám gistiherbergja

Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um leigunám gistiherbergja o.fl. vegna fundar leiðtoga Bandaríkja Ameríku og Sovétríkjanna. Nefndin hefur rætt frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt, en Eyjólfur Konráð Jónsson og Eiður Guðnason voru fjarverandi lokaafgreiðslu málsins.