04.02.1987
Efri deild: 37. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2715 í B-deild Alþingistíðinda. (2551)

271. mál, Þróunarsjóður fyrir Færeyjar, Grænland og Ísland

Frsm. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Hér þekkja allir það mál sem til umræðu er. Það hefur verið á döfinni nokkuð lengi að stofna þróunarsjóð fyrir Færeyjar, Grænland og Ísland og margrætt á fundum Norðurlandaráðs t.d. Síðan var þessi fyrirætlun undirrituð í samkomulagi á Höfn 19. ágúst 1986.

Fyrir Sþ. liggur till. til þál. um staðfestingu samnings um starfrækslu norræns þróunarsjóðs fyrir Færeyjar, Grænland og Ísland, en frv. það sem hér er til umræðu og afgreiðslu er um nokkrar lagabreytingar sem nauðsynlegar eru í tengslum við fullgildingu þáltill. sem væntanlega verður á dagskrá Sþ. á morgun.

Nefndin hefur rætt málið og mælir með samþykkt frv.