10.02.1987
Sameinað þing: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2878 í B-deild Alþingistíðinda. (2665)

312. mál, verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli

Utanríkisráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég ætla ekki að orðlengja varðandi þessa fsp., en get skýrt frá því hér og nú að ég átti í gær fund með fjórum sveitarstjórnum þar syðra til að ræða ákveðin samskiptamál varnarmálaskrifstofunnar og þessara sveitarfélaga og hyggst ræða við þær þrjár sveitarstjórnir sem eftir eru um samskiptamál þeirra og varnarmálaskrifstofunnar, þannig að a.m.k. ég hef vilja til þess að hafa samstarf eins gott og það getur verið á milli varnarmálaskrifstofunnar og utanrrn. og sveitarfélaga þar syðra.