10.02.1987
Sameinað þing: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2885 í B-deild Alþingistíðinda. (2672)
314. mál, veiði kúfisks
Björn Dagbjartsson:
Herra forseti. Það er rétt hjá hæstv. sjútvrh. að það er rétt að fara sér hægt í þessu máli, enda hefur það verið gert hjá kúfisknefnd. Mér vitanlega hefur ekki verið haldinn nema einn fundur í u.þ.b. tvö ár. Það sem mig langaði til þess að vita, ef hæstv. ráðh. getur svarað, er hvort opinberu fé hafi verið veitt í verulegum mæli til annars fyrirtækis í sama skyni. Mér er nokkuð kunnugt um að fyrirtæki á Súgandafirði hefur hugsað sér til hreyfings í þessum efnum.