28.10.1986
Sameinað þing: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (280)
47. mál, almenningsbókasöfn
Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Vegna fyrri liðar fsp. vil ég taka fram að nefnd sú, sem þáv. menntmrh. Ingvar Gíslason skipaði til að gera heildaráætlun um uppbyggingu almenningsbókasafna og staðsetningu þeirra, skilaði grg. til ráðuneytisins með bréfi dags. 13. ágúst 1985 en ekki 12. okt. 1983 eins og segir í fsp. Í niðurlagi þeirrar greinargerðar var tekið fram að mjög almenn óánægja ríkti með gildandi lög og þess óskað eindregið að lög nr. 50 frá 1976, um almenningsbókasöfn, yrðu endurskoðuð.
Þáv. menntmrh. Ragnhildur Helgadóttir ákvað síðan að svo skyldi gert og í framhaldi af því skipaði ég þá nefnd sem hv. fyrirspyrjandi upplýsti að hefði unnið að málinu með Pál Líndal sem formann. Þessi nefnd skilaði áliti í marsmánuði s.l. og drögum að frv. til nýrra laga. Athugasemdir hafa komið fram við áðurgreind frumvarpsdrög í mjög mörgum greinum og eru þau enn til athugunar í ráðuneytinu.
Vegna síðari liðar fsp. tek ég fram að svarið er já. Ég hef í hyggju að leggja fram frv. til l. um almenningsbókasöfn á þessu þingi.