17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3143 í B-deild Alþingistíðinda. (2838)

329. mál, Skriðuklaustur

Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Það er þá best að taka um það ákvörðun hér og nú að menntmrh. beiti sér fyrir skipun nefndar sem hefði það með höndum að móta tillögur, koma fram með hugmyndir og undirbúa að minnst verði á veglegan hátt afmælis Gunnars Gunnarssonar og þá á Klaustri.