17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3165 í B-deild Alþingistíðinda. (2877)

333. mál, löggæslumál á Reyðarfirði

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Herra forseti. Til að fyrirbyggja misskilning, þá er það svo að ráðherra hefur ekki vald til að fyrirskipa ráðnum starfsmanni að flytja sína búsetu. Hins vegar ítreka ég einu sinni enn að ég tel æskilegt að annar þessara lögreglumanna sé búsettur á Reyðarfirði, eins og ég sagði í máli mínu áður, en að samstarf og samvinna hins vegar haldi áfram þarna fyrir austan.