18.02.1987
Neðri deild: 44. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3224 í B-deild Alþingistíðinda. (2914)

336. mál, deilur menntamálaráðuneytisins og fræðsluyfirvalda í Norðurlandsumdæmi eystra

Stefán Guðmundsson:

Virðulegi forseti. Mér sýnist óeðlilegt að vísa ekki frv. á þskj. 586 til þingnefndar. Með því er ég þó ekki að taka afstöðu til þess að Hæstiréttur tilnefni sérstaka rannsóknarnefnd, eins og segir í frv. Ingvars Gíslasonar og meðflytjenda hans, heldur aðeins að staðfesta þá skoðun mína að eðlilegt sé að málið fái þinglega meðferð í þingnefnd, og því segi ég nei.